Tannlæknar

Kristján Þór Víkingsson

Tannlæknir og tannsmíðameistari

Aron Guðnason

Tannlæknir

Davíð Fannarsson

Tannlæknir

Sérfræðitannlæknar

Gunnlaugur Rósarsson

Sérgr. tannholdssjúkdómar

Elísa Arnarsdóttir

Sérgr. Rótfyllingar

Sævar Pétursson

Sérgr. Munn- og kjálkaskurðlækningar

Tannsmíði

Eva Guðmundsdóttir

Snædís Sveinsdóttir

Gunnar Þór Kristjánsson

Skrifstofa

Helga Sól Birgisdóttir

Framkvæmdastjóri

Einnig starfar á hverjum tíma menntað aðstoðarfólk / tanntæknar tannlæknum til aðstoðar

Samstarfsaðilar

Samstarfsaðilar / sérfræðingaþjónustu  Sellu tannlækna sem gefa álit  í tannlæknisfræði:

 

  • Elísa Arnardóttir – sérfræðingur í rótfyllingum
  • Magnús Björnsson – sérfræðingur í tannholdssjúkdómum
  • Gunnlaugur Rósarsson- sérfræðingur í tannholdssjúkdómum
  • Gísli Einarsson  – sérfræðingur í tannréttingum
  • Sævar Pétursson – sérfræðingur í munn og kjálkaskurðlækningum
  • Sigurður Rúnar Sæmundsson – sérfræðingur í barnatannlækningum
  • Þórir Schött – sérfræðingur í tannréttingum
  • Stefán Pálmason – sérfræðingur í munnlyflækningum

 Um Sellu Tannlækna

 

Stofnun fyrirtækisins má rekja til ársins 1980 þegar stofnandinn Kristjan Þór Víkingsson tannlæknir hóf störf eftir nám. Starfsstöðin var í upphafi við Þórunnarstræti  en frá 1989 var starfsemin flutt í nýtt húsnæði í miðbæ Akureyrar , í  Hofsbót 4, þar sem aðalstarfsstöðin er til húsa. Hofsbót 4 er næsta hús við aðalstoppistöð Strætisvagna Akureyrar og BSO leigubílasöðina Tannlæknar og tannsmiðir  Sellu –tannlækna ehf. búa yfir mikilli þekkingu og hafa yfir 30 ára reynslu í tannlækningum.

 Heitið Sella er latneskt og þýðir söðull  og kemur fyrir í anatomíu höfuðkúpunnar, sem Sella Tursica ( wikipedia.org) sem útleggst Tyrkjasöðull,  og er beinkrans sem umlykur og varðveitir heiladingulinn en hann stjórnar með hormónum  mikilvægum störfum líkamanns .

Metnaður á heimsklassa hefur verið leiðarljós fyrirtækisins frá upphafi, bæði á faglegum grunni og í aðbúnaði og hefur aðstaðan, sem er sérstaklega hönnuð til tannlækninga, hlotið viðurkenningar fyrir nýstárlega en tímalausa hönnun og lýsingu. Það hefur verið lögð áhersla á birtu, sem sköpuð er með óbeinni lýsingu, vítt er til veggja og með öflugu loftræstikerfi er vinnusvæðið gert lyktarlaust . Hönnuðir voru Dr. Maggi Jónsson arkitekt, Jóhann Sigurðsson lýsingarhönnuður ( Raftákn) , og planing deild Sirona / SIEMENS ,Bensheim Þýskalandi

Fyrirtækið hefur verið fljótt að tileinka sér nýjungar, sem oft hafa verið umdeildar , en þannig er það oft með framfarasporin, þótt síðar séu þau álitin sjálfsögð. Flestar nýjungar þarf að sækja vitneskju um erlendis frá og má í því sambandi nefna að starfsfólk Sellu-tannlækna hefur aflað sér víðtækrar þekkingar, heima og erlendis.

Í dag hafa um 15 þúsund einstaklingar notið þjónustu og aðhlynningar hjá fyrirtækinu.

Nokkrir „ mílusteinar „

  • 1980 voru teknar í notkun nútíma áhaldakasettur , f. öll verkfæri í munni
  • 1980 var notkun maska við alla vinnu á klínik innleidd ( var ekki algeng )
  • 1982 notkun skorufyllinga (fissura sealants) sem forvörn ( nýtt fyrirbæri)
  • 1983 viðurkenning tannsmíðameistara réttindi
  • 1987 tölvuvæðing þá var  fyrsta tannlæknatölvukerfi landsins innleitt
  • 1990 voru settar reglur um að starfsfólk noti hanska og maska við alla vinnu á klínik ( HIV , Hepatitis,)
  • 1992 var lokið námi og þjálfun í ísetningu og smiði á Implants ( gervi tannrætur ), tannplanta vinna hefst, fyrsti ITI Strauman tannplanti ígræddur
  • 1999  var innleidd dauðhreinsun ( autoclavering ) allra handstykkja milli sjúklinga. B autoclav
  • 1997 hafin notkun Sverker heilpostulínstennur / málmlausar
  • 1999 Sjálfvirkar sótthreinsi áhaldaþvottavélar /desinfecta
  • 2003 intra-orla camera, myndgreining og skönnun munnhols
  • 2004 innleiddar Porcera Zirconian oxide postulínskrónur
  • 2005 Sirona / Nitcam handstykkja dauðhreinsun ( autoclavering)
  • 2005 CRESCO titanium heilbrýr á tannplanta / fastar lausnir
  • 2006 Zirconian oxide heilbrýr og stakar krónur
  • 2008 Sidexis XG OPG tenging og greiningaforrit / SIRONA
  • 2011 CEREC 4 CAD/CAM tannfyllingar
  • 2015 Straumann DentalWing CAD /CAM scan tækni f. tannsmiði
  • 2016 Nýtt sjúklingaforrit OPUS, bætir á rafrænan hátt yfirsýn yfir ástand sjúklinga okkar
  • 2017 Sirona HD Digital intraoral röntgenmyndatækni
  • 2017 Sirona Sidexis 4 myndgreiningar og planing forrit
  • 2018 Digital Orthopantomagram Orthophos XG 3D Ready
  • 2019  SIRONA Digital images sensors
  • 2019  SIRONA CEREC intraoral primescan
  • 2020   Clear Correct tannréttinga skinnur  
  •